Eg er a lifi og lifi godu lifi i Hong Kong. Vid komum hingad 1. mai og erum buin ad fara a strandir og liggja i solbadi og njota 30 stiga hitans i botn. Kiktum i skemmtigard i dag og erum a leid a markad. Eg hef fra morgu ad segja, en hef varla haft tima til ad blogga. Nokkrir dagar i Hong Kong i vidbot og svo forum vid til Shanghai og thadan til Svithjodar. Svo kem eg til Klakans 1. juni.
Kina!
Nu er eg buin ad vera i kina i taeplega viku og er buin ad upplifa mikid. Nanast of mikid. Vid komum til Shanghai a thridjudeginum og thratt fyrir 15 tima ferdalag var enginn timi til ad slaka a. Vid forum strax i sightseeing um Shanghai. Shanghai er stor borg, vaegast sagt. Thar er rosalega mikid af folki, og vid sem vesturlandabuar sjaumst mjog vel og vorum audveld brad fyrir gotuseljara sem vildu selja manni allt milli himins og jardar, misgrunsamlegt. Ad ganga um gotur Shanghai var mjog threytandi, folk stoppadi okkur a gotunni og vildi taka myndir af okkur eda taka myndir af ser med okkur. Eftir einn dag var madur gjorsamlega buinn a thvi.
Nytt umhverfi, nytt folk og mikid af kinverskum taknum hefur haft thau ahrif a mig ad eg byrja stundum, an thess ad gera mer grein fyrir thvi, ad tala islensku. Tha tharf folk ad stoppa mig og eg fatta ekki neitt!
Vid komum til Ningbo a fostudaginn og her buum vid a haskolasvaedinu. Thad er mjog stort og her er grodur greinilega i miklu uppahaldi. Vid buum i tveggja herbergja ibudum sem eru misgodar. Klosett flaeda yfir, sturtubottnar eru ovatnsheldir og svo maetti lengi telja, en thad gaeti verid verra.
Sidan a laugardaginn erum vid buin ad vera a fyrirlestrum, baedi hja svium, einum fra Kanada og svo fengum vid fyrirlestur um kinverskan arkitektur hja kinverskri stelpu i morgn. Kinverjar eru duglegir, en ef thad er eitthva sem haegt er ad segja um enskuna theirra, tha er thad ad hun er oskiljanleg. En thetta var samt sem adur ahugavert.
Eg er buin ad upplifa svo marg sidustu daga ad eg gaeti haldid afram endalaust, en eg held eg stoppi her og reyni ad skrifa meira seinna. Vona ad allt se gott heima a Islandi.
Ég veit að þið lesið alltaf bloggið mitt þannig að ég ákvað að tileinka ykkur eina færslu. Til að byrja með langar mig að þakka ykkur kærlega fyrir peysuna sem þið senduð, hún er æðisleg! Amma, þú ert nú meiri tískuhönnuðurinn!
Núna eru að koma páskar og ég er komin í hálfgert frí, en á mánudaginn fer ég til Kína með bekknum. Þetta er búið að standa til svo lengi að nú þegar ferðin nálgast óðfluga veit ég ekki alveg hvernig ég á að haga mér! Ég er rosalega spennt, en þetta virðist allt svo fjarlægt að þrátt fyrir að ég sé búin að pakka niður í töskurnar þá á ég eitthvað erfitt með að skilja að ég verði hinum megin á hnettinum eftir nokkra daga.
Fyrstu dagana í Kína verðum við í Shanghai á hóteli, en síðar í vikunni förum við í "bæ" sem heitir Ningbo og búum í stúdentaíbúðum í háskóla þar. Í Ningbo búa fimm miljónir og þar er mikið um fataframleiðslu og annan iðnað. Í Ningbo förum við á fyrirlestra og í fyrirtækjaheimsóknir og gerum ýmis verkefni. Síðustu vikuna fáum við svo að ferðast frjálst, en þá ætlum við vinkonurnar að fara til Hong Kong.
Ferðin er sem sagt ekki bara leikur heldur er þetta hluti af lokaverkefninu okkar. Í sambandi við ferðina eigum við að setja upp heimasíðu, skrifa greinar, blogga og gefa út tímarit. Ég var með í því að gera heimasíðuna og kem svo til með að blogga í ferðinni. Þið getið kíkt á síðuna hérna: Rice&Shine.
Við Raggi ætlum að eyða páskunum tvö saman í Gautaborg, elda góðan mat, fáum nokkra vini í heimsókn á páskadag og ætlum að elda almennilega páskamáltíð og hafa það huggulegt. Hann heldur svo bara áfram í skólanum á meðan ég fer í ævintýraleit.
Ég vona að allt sé gott heima og ég bið að heilsa öllum. Knúsið öll "litlu" frændsystkini mín frá mér og eigið gleðilega páska!
... þá er þetta framlag mitt til þeirra 500 umsókna (giver or take) sem sendar voru í HDK (Högskolan för design och konsthantverk) í Gautaborg. Og svo er það bara að krossa fingur og halda í þumla og kasta salti yfir axlir og brjóta allar lappir sem á vegi ykkar verða og vona það besta! (ég meina þetta að sjálfsögðu ekki í bókstaflegri merkingu og ber enga ábyrgð á mögulegum saltskemmdum, fótbrotum eða snúnum þumlum).
...þá get ég ekki annað gert en að skella einu stuttu blogg inn svona í morgunsárið. Síðustu vikur hefur verið mjög mikið að gera hjá mér. Eins og ég sagði í síðasta bloggi þá á að skila umsókn í skólann bráðum og ég er nánast búinn, en þar sem ég er meyja segja stjörnurnar að ég sé fullkomnunarsinni og ekki viljum við svíkja þær. Ég hef líka verið að gera verkefni í skólanum, er í fjármálaáfanga sem er ekki mín sterkasta hlið, en hann er bráðum búin og þá get ég loksins andað léttar. Svo hannaði ég kaffivélina í fyrra innlegginu og gerði módel í þrívíddarforriti og ég veit ekki hvað og hvað...
Eftir 20 mínútur er ég svo að fara í sprautu því að eftir mánuð verð ég hér:
...Og ekki svo margt hjá mér heldur! Það er frekar mikið að gera þessa dagana. Akkúrat þegar ég held að það sé í góðu lagi að ná sér í aukavinnu og vera með fullt af aukaverkefnum þá ákveða kennararnir að drekkja okkur í verkefnum. En þeir sem þekkja mig vita að svona líður mér best. Á haus í skólanum og helst með nokkur stór verkefni með, þannig á það að vera!
Þetta er svo það sem ég er búin að vera að dunda mér við upp á síðkastið:
Ég fór svo til Gautaborgar í afslöppun og dekur hjá Ragga um helgina. Við fórum á ljósmyndasýningu (eiginlega ljósmyndadótsýningu) og borðuðum góðan mat, bökuðum bollur í gær og hámuðum í okkur með Agli og Siggu og spiluðum svo Carcasonne. Mjög góð helgi.
Næstu vikur verða skemmtilegar en strembnar fyrir mig. Bara þrjár vikur þar til ég á að skila af mér umsókn og í sömu viku er eitt erfiðasta prófið hingað til... Viðskiptaréttur og reikningar (svona í grófri þýðingu). Össössöss...
Þriðja skólavikan er að líða undir lok og það er alltaf að verða meira og meira að gera. Þessi önn lítur út fyrir að verða mjög ströng, en ég hef gott af smá aðhaldi! Það er búið að vera allt of rólegt hjá mér...
Á morgun fer ég til Gautaborgar á opið hús í HDK. Fyrir þá sem ekki vita þá er það skólinn sem ég ætla að sækja um fyrir næsta haust. Ég er núna að vinna í möppu sem ég á að skila inn 15. mars. Ég ætla sem sagt að sækja um í þriggja ára hönnunarnám. Allar áæltanir um að flytja heim hafa verið saltaðar af augljósum ástæðum, þannig að ég ákvað að skella mér bara á að sækja um í listaháskóla, eitthvað sem ég hef lengi látið mig dreyma um, en aldrei látið verða að.
Annars gengur lífið sinn vanagang hér í Jönköping, þó að ég sé kannski ekki búin að verja miklum tíma af janúar hérna. Ég fæ vikufrí í viku 7 (ég er orðinn svo mikill svíi að ég veit ekki einu sinni hvaða mánaðardagar það eru!) og sá tími verður held ég notaður í að klára verkefni og vinna í möppunni minni. Það er svolítið skrýtið til þess að hugsa að ég á bara nokkra mánuði eftir hérna í Jönköping. Reyndar er back-up planið að taka þriðja árið hérna í Jönköping, en ég er að æfa mig í "the secret" aðferðinni og það er einhvern veginn svona: ÉG KEMST INN! Þannig að þetta er ekki spurning um hvort ég komist inn, heldur þegar ég kemst inn i HDK! Eða? Þess virði að prufa að minsta kosti.
Ég fjárfesti svo í spilinu JungleSpeed og ég er búin að spila það núna tvö kvöld í röð! Góð fjárfesting það og ég er líka búin að breiða út gleðina, því vinkona mín keypti sér spilið um leið og hún kom heim frá mér í fyrrkvöld eftir þrjá tíma á gólfinu í mjög æsandi leik þar sem trépinnar flugu og unnið var í almennum hnjámeiðslum. Frábært spil! Mæli með því!
Umsóknarferlið fyrir haustönnina. Ekki laust við að það sé smá hnútur í maganum og ég er alls ekki viss um að sá hnútur eigi eftir að minnka næstu vikurnar. Það verður líklega þveröfugt. En þetta er spennandi og ég hef hugmyndir, en hugmyndirnar þarf að festa á blað, sem er kannski hægara sagt en gert. Þakkið fyrir þið sem eruð í 3000 km fjarlægð frá mér því ég held að þetta eigi eftir að taka á taugarnar.
En einmitt af því að þetta á eftir að taka á taugarnar byrja ég með því að fara í bústaðarferð á næstu helgi. Það ætti að róa mig aðeins!
Svo byrjar Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Gautaborg á næstu helgi. Við Raggi ætlum að kaupa okkur passa og týna okkur í myrkum kvikmyndasölum vítt og breytt um borgina næstu tvær helgar.
Og af því að ég gleymdi því í síðasta innleggi, þá langar mig til að þakka ykkur öllum fyrir frábær jól og áramót! Það var nóg að gera og stundum náði maður bara nokkurra tíma svefni inn á milli boða og partýa, en það var aldrei leiðinleg stund. Ég er mjög ánægð að hafa náð að hitta alla sem ég náði að hitta á þessum tveimur vikum, og þið sem ég náði ekki að hitta; það er alltaf heitt á könnunni í Jönköping!
Ég ætla að fara að teikna, og svo er ég víst í skóla líka sem þarf að sinna. Úps.
Og það er bara ekki sem verst. Það er reyndar mjög kallt í íbúðinni minni, en ég hef þá bara afsökun fyrir því að liggja undir sæng!
Raggi er búinn að vera hjá mér síðan á þriðjudaginn. Hann byrjar ekki í skólanum fyrr en á mánudaginn á meðan það er búið að vera fullt að gera hjá mér síðan á mánudaginn og ég er ekki einu sinni byrjuð í öllum áföngum. Merkilegt hvað vinnuálagi er illa dreift á annir í náminu mínu. En þetta er að sjálfsögðu bara skemmtilegt, þannig að ég kvarta ekki.
Ég fjárfesti svo í miða til Kína í vikunni! Fer til Shanghai mánudaginn 13. apríl og fer aftur til Svíþjóðar 10. maí. Við erum ekki ennþá búin að fá það á hreint hvernig planið er, hvað við gerum og hvenær við gerum það, en við vitum að við förum í fyrirtækjaheimsóknir og fyrirlestra í háskólanum í Ningbo og að við munum þurfa að vinna mikið þessar þrjár skipulögðu vikur. En svo fáum við eina viku til að ferðast á eigin vegum og við vinkonurnar erum að velta því fyrir okkur að fara til Hong Kong. Kínamúrinn verður bara að bíða betri tíma. Óþolandi hvað sum lönd geta verið stór og óhentug í svona vikuferðalög þegar maður vill sjá allt.
Það er víst komið að því að borða, Raggi er búinn að elda fyrir okkur kjúkling og svo er ferskur ananas í efterrétt. Frábært laugardagskvöld! Svo ætla ég að mæla með þáttunum Mad Men fyrir þá sem ekki hafa heyrt af þeim. Skemmtileg tilbreyting frá þessum týpísku hollívúdd þáttum.
Eitt próf búið...
...eitt eftir. Plús eitt skilaverkefni! Fyrsta prófið gekk vonum framar og ég gekk út ánægð. Vona að næsta gangi jafn vel. Ég er farin að hlakka til að komast heim í jólagleðina og knúsa alla á klakanum!
Ég er, eins og flestir, í prófum og jólaundirbúningi og hef ekki gefið mér tíma til að blogga. Ef ég á að vera alveg hreinskilin, þá gleymdi ég því eiginlega bara! En æstir aðdáendur mínir geta ekki beðið lengur og ég verð því að leifa einstöku blogghæfileikum mínum að líta dagsins ljós í fyrsta skipti í rúmlega mánuð.
Síðasti mánuðurinn er búinn að líða hraðar en ég átti von á. Ég er búin að vinna mikið, læra mikið, búa til jólagjafir (sem verða að stærstum hluta heimatilbúnar í ár) og skemmta mér með vinum mínum. Þetta er búinn að vera mjög góður mánuður, þrátt fyrir að það hafi verið mikið að gera.
Í gær byrjaði svo að snjóa, einstaklega passandi þar sem ég og Sara vinkona mín og nágranni fórum í jólaverslunarleiðangur í verslunarmiðstöðina í gær. Snjórinn er gríðarlega hressandi, en grunar samt að hann sé ekki hér til að vera. En þá er bara að drífa sig heim til Íslands í snjóinn! Eða...? Er snjór heima?
Ég kem að minnsta kosti ekki heim fyrr en 23. des, beint í jólastemninguna, skötuna og gleðina. Ég hlakka mikið til að koma heim, en ég hef samt haft lítinn tíma til að hugsa um að ég sé að koma heim. Ég fer í tvö próf í næstu viku, svo verður pakkað og farið til Gautaborgar þar sem við Raggi leggjum lokahönd á jólagjafir, hittum vini og eldum og borðu Sushi, förum og höldum upp á litlu jól með mömmu hans Ragga í Herrljunga og förum svo í Liseberg! Ómissandi partur af jólunum að fara í Liseberg. Mig grunar að ég eigi fyrst eftir að fatta að ég sé á leiðinni heim þegar ég sest niður í lestina til Stokkhólms þann 23.
Fyrir þá fáu sem líta ennþá við hérna, þá fer ég aftur til Svíþjóðar 8. janúar.
Ég sit heima hjá vinkonu minni á meðan hún ryksugar. Við ætlum að fá okkur hádegismat þrjár saman. Í morgun fór ég á kaffihúsið mitt og tók nokkrar myndir fyrir skólann.
Síðustu vikuna hefur verið alveg nóg um að vera hjá mér. Ég kláraði tvo áfanga, með kynningu á fimmtudaginn og er búin að búa í skólanum síðustu tvær vikurnar. Stórfrétt vikunnar er þó líklega sú að ég fór á þriðjudaginn og sótti um vinnu á kaffihúsi hér í bæ, svona til að lifa af. Á miðvikudaginn var hringt í mig og í gær var ég mætt galvösk í vinnu! Ég get fengið að ráða vinnutímanum nokkuð sjálf, er ekki með neina fasta daga ennþá, má bara skrá mig á þær vaktir sem eru lausar, sem hentar mér mjög vel. Hápunkturinn er þó án efa að fá að gera kaffi aftur... Gaman gaman! Maður fær svo ekkert allt of langan tíma til að anda á milli áfanga, byrja í nýjum á mánudaginn.
En nú er helgi og nú á að skemmta sér og ég ætla að fara í brúðkaup í dag! Bekkjarsystir mín er að fara að gifta sig og ég ætla að fara í kirkjuna. Ég hef bara einu sinni farið í brúðkaup áður, en þá var ég svo lítil að ég man ekki eftir því. Þetta verður örugglega alveg frábært!
Um helgina var Raggi minn hjá mér og við tókum sannkallaðan innipúka. Við komumst í gegnum þrjár kvikmyndir (eina fyrir hvert kvöld) og geri aðrir betur! Við náðum líka að borða alveg helling af hollustu og óhollustu, taka myndir og læra. Þetta var yndisleg helgi og kærkomin í ljósi þess að næstu tvær vikur verða hrein klikkun hjá mér. Ég hefði átt að kvarta meira á síðasta ári undan verkefnaleysi.
Hér eru fallegir haustlitir allsráðandi og á sunnudaginn fórum við Ragz í langan göngutúr og smelltum nokkrum myndum.
Ég nýt þess að fara út að ganga þegar veðrið er svona, en ég er ekki alveg jafn hress með skammdegið sem er að færast yfir... En þetta á allt eftir að líða hratt.
Það er farið að skýrast aðeins með Kínaferð sem sum ykkar vita kannski af (líklegast ekki samt). Bekkurinn ætlar í fjögurra vikna ferð til Kína á vorönn (byrjun apríl) og að sjálfsögðu ætla ég ekki að láta mig vanta! Þetta er námsferð, sem þýðir að við komum til með að vinna þarna úti (förum í heimsóknir í fyrirtæki og tökum jafnvel að okkur einhver minni verkefni) en svo fáum við heila viku til að fara hvert á land sem við viljum! Þvílíkt ævintýri það! Spurning samt hversu spart maður þarf að lifa næstu mánuðina til að eiga fyrir flugmiða, sérstaklega í ljósi stöðu krónunnar! Ojobojo, þetta er alveg glæpsamlegt. En ekki nánar út í þá sálma.
Ég tek það á mig og kenni stífri dagskrá utan vefheims um. Já, það hlaut að koma að því, það er mikið að gera í skólanum. Hvort sem það má rekja til mikilla kvartana á síðasta ári eða að nýr kennari (með reynslu og kröfur, bæði til sín og okkar) hefur verið ráðinn til starfa, þá er mikið að gera. Ég hef þess vegna lítið verið heima, eða haft orku eða nennt að blogga. En núna hef ég smá tíma aflögu, á milli fyrirlestrar og jógatíma til að rita hér smá fréttir.
Helst í fréttum er að mamma mín og Helga Hrund eru nýfarnar heim eftir góða langa helgi hérna í Jönköping og í Gautaborg. Þær komu til mín á miðvikudaginn og voru því hjá mér á afmælinu mínu sem var alveg frábært! Ég fékk sendar góðar gjafir frá Íslandi, en besta gjöfin var samt að fá þær hingað í heimsókn. Ég gleymdi meira að segja sjálf að ég ætti afmæli. En það var góður dagur.
Heimsókn þeirra var frábær endurnæring og orkukikk fyrir komandi þrjár vikur sem verða undirlagðar í skólavinnu (og kannski einni heimsókn frá einhverjum góðum, hver veit?). Eitt stórt verkefni inn á fimmtudaginn, annað enn stærra eftir þrjár vikur og svo fengum við eitt í viðbót í morgun. Svo er mér ætlað að stjórna þessu öllu saman og halda utan um allt heila klabbið! Maður er svo góðhjartaður!
Ég ætla að kveðja ykkur að sinni.
Elín - sem ætlar að reyna að vera duglegri bloggari!
Ég kláraði prófin í gær og í dag verður lögð lokahönd á verkefni. Þetta er síðasti dagurinn minn í skólanum, og nóttin í nótt var mjög líklega síðasta nóttin mín í Råslätt. Ég ætla að fagna þessum degi með því að prufa, í fyrsta skiptið, að hjóla í skólann. Í kvöld verður svo haldið upp á skólalok með útibíói og folkeöl og svo aldrei að vita nema ég sofi fyrstu nóttina í nýju íbúðinni.